Annar samskonar bátur og Indriði Kristins BA , enn þessi er fyrir 11 metra kerfið í Noregi.

------------------------
Ný 11metra Cleopatra 36B afgreidd til Tromsø
Útgerðarfélagið West Atlantic AS í Tromsø í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan
Cleopatra beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Að útgerðinni stendur Bjarni Sigurðsson. Íslendingur sem verið hefur búsettur í
Noregi í áratugi.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Tranøy. Báturinn mælist 18brúttótonn. Tranøy er
af nýrri gerð Cleopatra 36B sem er sérhönnuð inn í undir 11metra veiðikerfið í
Noregi. Báturinn er byggður á sömu hönnun og Indriði Kristins sem Trefjar afgreiddu
nýverið til Tálknafjarðar.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 550hö tengd ZF500IV gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad.
Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem
tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til línuveiða með
beitningarvél. Beitningavélarkerfi og línuspil er frá Mustad og annar búnaður til
línuveiða frá Stálorku ehf. Blóðgunarkerfi er frá 3X og sjókælir frá Kælingu ehf.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 660L, 4stk 460L kör eða 29stk 460L kör í lest. Í bátnum er
upphituð stakkageymsla með aðstöðu fyrir 4 skipverja. Sæti fyrir áhöfn í brú.
Svefnpláss er fyrir fjóra í tveimur aðskyldum klefum. Salerni og sturtuaðstaða í
lúkar. Í lúkar ásamt fullbúinni eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
|
|
|
|